Navitron Autopilot Type NT888G MK2

NT888G MK2 er af nýrri kynslóð stafrænna sjálfstýringa frá Navitron Systems Ltd. sem tengist bæði seguláttavitum, gýróáttavitum og GPS áttavitum. Stýringin hentar öllum gerðum skipa, þ.m.t. mjög hraðskreiðum skipum og skipum allt að 3000 brúttó tonnum.

Stýringin lagar sig sjálfvirkt að hraða skipsins (Speed Adaptive), stillir sig stöðugt eftir breyttum aðstæðum til að sigling skipsins sé ávallt sem eðlilegust. Skjárinn er 4,3“ litaskjár með baklýsingu.

Í uppsetningar valmynd (Set Up Menu) getur notandi vistað stillingar sem henta fyrir hans skip, hvort sem um er að ræða fiskiskip, hraðskreiðar farþegaferjur eða flutningnaskip.

Einingar sjálfstýringarinnar eru: Stjórneining (Control Unit), vinnslueining (Processor Unit, Central Distribution Unit) og stýrisstöðuviðnám (Rudder Reference Unit). Stjórneiningu sjálfstýringarinnar hentar að fella inn í púlt eða nota borðfestinguna.

Tengja má allt að þrjár stjórneiningar við sjálfstýringuna sem eru með öllum stjórnunaraðgerðum stýringarinnar, þ.m.t. skjáframsetning (Operating Mode), stefna (Heading), stilling stefnu (Course Set), stýrisstaða (Rudder Angle), snúningshraði (Rate of Turn) og hraði skips í leiðaritaframsetningu (Track Mode).
Stýringin er fáanleg með mismunandi vinnslueiningum sem passa að ólíkum stýrisbúnaði.

Sjálfstýringin er tengjanleg við ECDIS og vinnur þá eftir upplýsingum og skilyrðum ECDIS sem eykur skiljanlega öryggi siglingarinnar.

NT888G MK2 uppfyllir allar kröfur sem gerðar eru til sjálfstýringa sem tengjast seguláttavitum, gýróáttavitum og GPS áttavitum í öllum gerðum skipa. Stýringin byggir á hefðbundinni Navitron sjálfstýringatækni, m.a. þeirri að hún „lærir“ á eiginleika skipsins við ólíkar aðstæður til sjós. Slökkva má á þessum eiginleika.

NT888G MK2 uppfyllir stýrishjólskröfur IMO (Wheel mark), þ.m.t. ISO 16329 & 11674 (2019), IMO A342(IX) skv. MSC 64/67 Annex 3. Þá uppfyllir stýringin kröfur vegna BAMS (Bridge Alert Management System).

  • Tveir inngangar fyrir stefnu á NMEA formi
  • Inngangur fyrir stefnu frá seguláttavita spóluskynjara
  • Fjölpunkta leiðarstýring frá leiðarita
  • Innbyggð stefnuviðvörun
  • Innbyggð vaktklukka (hljóð/ljós)
  • Notendastillingar fyrir stefnubreytingar og stefnuyfirtöku aðgerðir
  • NMEA stefnuútgangar
  • 18 – 40 VDC tvöfaldur spennugjafi
  • 11 – 110 VDC/5A útgangur fyrir ventlastýringu
  • Hraðvirk sjálfstýring með innbyggðum fjölkjarna örgjörva
  • Yfirgripsmikil alhliða sjálfstýring en einföld í notkun
  • Hentug sjálfstýring fyrir allar gerðir skipsskrokka
  • Getur tengst þremur stjórneiningum samtímis
  • PID upplýsingaöflun (Proportional Integral Derivative)
  • Sjálfvirkur stöðugleiki á stefnu
  • Sjálfvirk leiðrétting á stefnu (Trim)
  • Innbyggð hljóð-/ljósviðvörun
  • Getur stjórnað tveimur hliðarskrúfum

Vörulýsing

NMEA0183: NMEA2000: Nei
Skjástærð: 4.3″ Vatnsheld: IP56
Spenna: 12 – 24 VDC Straumtaka: 0.84 – 0.42 A

PDF Skjöl

Bæklingur Navitron NT888G Bæklingur