Navitron Autopilot Type NT777 Mk2

NT777 MK2 er af nýrri kynslóð stafrænna sjálfstýringa frá Navitron Systems Ltd., hönnuð fyrir minni atvinnuskip, hafnsöguskip, björgunarskip, fiskiskip o.fl., allt að 25 metra löng. Stýringin er með öllum helstu og mikilvægustu eignleikum Navitron stýringa, fyrirferðarlítil, sterkbyggð og með notendavænu viðmóti.

Sjálfstýringin er með 4,3“ litaskjá. Þegar hún er stillt á leiðaritastjórnun (Track Steering Mode) uppfærist skjámyndin sjálfkrafa með ýmsum tölulegum upplýsingum.

Tengja má NT777MK2 beint við NMEA tengi GPS áttavita. Þegar notast er við fleiri en einn stefnuinngang stillir notandi hvaða inngangur hefur forgang og verði hann fyrir truflunum/bilun verður annar stefnuinngangur virkur.

Einingar sjálfstýringarinnar eru; stjórneining (Control Unit), vinnslueining (Processor Unit, Central Distribution Unit) og stýrisstöðuviðnám (Rudder Reference Unit). Stjórneiningu sjálfstýringarinnar hentar að fella inn í púlt eða nota borðfestinguna.

  • NMEA2000 merkjabreytir
  • Tveir inngangar fyrir stefnu á NMEA formi
  • Inngangur fyrir stefnu frá seguláttavita spóluskynjara
  • Fjölpunkta leiðarstýring frá leiðarita
  • Margir stýrieininga valkostir
  • Innbyggð stefnuviðvörun
  • Innbyggð vaktklukka (hljóð/ljós)
  • Notendastillingar fyrir stefnubreytingar og stefnuyfirtöku aðgerðir
  • NMEA stefnuútgangar
  • 11 – 40 VDC tvöfaldur spennugjafi
  • 11 – 40 VDC/5A útgangur fyrir ventlastýringu
  • Hraðvirk sjálfstýring með innbyggðum fjölkjarna örgjörva
  • Yfirgripsmikil alhliða sjálfstýring en einföld í notkun
  • Hentug sjálfstýring fyrir allar gerðir skipsskrokka
  • Getur tengst þremur stjórneiningum samtímis
  • PID upplýsingaöflun (Proportional Integral Derivative)
  • Sjálfvirkur stöðugleiki á stefnu
  • Sjálfvirk leiðrétting á stefnu (Trim)
  • Innbyggð hljóð-/ljósviðvörun

Vörulýsing

NMEA0183: NMEA2000:
Skjástærð: 4.3″ Vatnsheld: IP56
Spenna: 12 – 24 VDC Straumtaka: 0.84 – 0.42 A

PDF Skjöl

Bæklingur Navitron NT777 Bæklingur