Navitron Autopilot Type NT1050

NT1050 er ný stafræn sjálfstýring frá breska framleiðandanum Navitron, þróuð og hönnuð fyrir fiskiskip, björgunarskip, hafnsöguskip og önnur vinnuskip. Stýringin byggir á áratuga reynslu og sérþekkingu Navitron á þróun og smíði sjálfstýringa fyrir allar gerðir skipa, allt frá smábátum til stærstu flutningaskipa. NT1050 er notendavæn stýring sem býr yfir eftirtöldum stöðluðum eiginleikum:

  • 5“ litaskjár, bjartur og skýr með góðu 80° sjónsviði frá öllum hliðum
  • NMEA 2000 tengi
  • Tveir NMEA0183 stefnuinngangar
  • Inngangur fyrir stefnu frá seguláttavita
  • Stýranleg frá leiðarita (plotter) út frá ferli
  • Hægt að vera með þrjár stjórneiningar tengdar við stýringuna
  • Innbyggð stefnuviðvörun
  • Innbyggð vaktviðvörun
  • NMEA0183 stefnuútgangur
  • Innbyggðar hliðarskrúfu stjórnanir

Stýringin notast við sjálfaðlögun og sjálfstillingu (adaptive & self-tuning) til að læra á hegðun skipsins og ná fram stefnufestu á siglingu og mýkt í beygjum þegar breytt er um stefnu. Forstilla má mörg vinnuviðmót og kalla fram eftir mismunandi veðri og aðstæðum við veiðar, sem er einstaklega hentugt fyrir fiskiskip.

NT1050 hentar skipsskrokkum af hvaða lagi sem er og vinnslueiningin (distribution unit) getur tengst allt að þremur stjórneiningum (control unit). Stýringin er hönnuð út frá ýtrustu nákvæmni- og áreiðanleikakröfum, þ.m.t. háþróaðri stjórngreind, sjálfvirkum stýrisstöðugleika, sjálfvirkri vigtun (trim) á færslu stýris, innbyggðri viðvörun og endurstillingar aðgerðum. Navitron studdist að allnokkru leyti við upplýsingar frá Brimrún við þróun stýringarinnar.
Stýringin samanstendur af stjórneiningu sem má festa á borð eða vegg og vinnslueiningu. Alhliða eða einföld stýrisstöðuviðnám eru fáanleg með stýringunni. Vinnslueiningin er hönnuð þannig að við hana má tengja allt að sex úttakseiningar fyrir stýris- og skrúfustjórnun.

Vörulýsing

NMEA0183: NMEA2000:
Skjástærð: 5″ Spenna: 11 – 40 VDC

PDF Skjöl

Bæklingur Navitron NT1050 Bæklingur