Furuno FAR-WV-100 öldugreining (Wave Analyzer)

WV-100 Furuno öldugreining (Wave Analyzer)

WV-100 er öldugreiningar hugbúnaður sem tengist Furuno FAR-2xx8 og FAR-3xx0 ratsjánum. Hugbúnaðurinn vinnur með endurvörp frá haffletinum og greinir sjólag, öldur, öldugang, öldutoppa o.s.frv. og birtir myndrænar upplýsingar þar um á sér skjá fyrir hugbúnaðinn og einnig á skjám ratsjánna.



Rauntíma upplýsingar um ölduhæð, hraða, stefnu og tíma milli alda birtist á skjánum bæði tölulega og myndrænt. Þessar upplýsingar auka öryggi skips á siglingu, ekki síst í myrkri.
Mögulegt að skipta tengingu WV-100 á milli X-Band, S-Band og „Solid State“ loftneta í samræmi við veðurskilyrði.
WV-100 hugbúnaðurinn er vistaður í tölvu og hefur engin áhrif á virkni ratsjárinnar sem hann tengist.

PDF Skjöl

Bæklingur WV-100 Bæklingur