SCX-21 gervitungla áttavitinn er með fjórum sjálfstæðum loftnetum innbyggðum í loftnetseiningunni. Fjögur loftnet skila óviðjafnanlega áreiðanlegri og nákvæmri stefnu til annarra siglinga- og fiskileitartækja. Venjulegir áttavitar reikna stefnu út frá einni grunnlínu milli tveggja loftneta. SCX-21 byggir stefnuútreikninga sína á grunnlínunum sex milli loftnetanna fjögurra og þannig fást óviðjafnanlega nákvæmar upplýsingar um stefnu, dýfu, veltu og híf (heave). SCX-21 er hinn fullkomni stefnugjafi sem uppfyllir ströngustu kröfur við erfiðustu aðstæður, þ.m.t. þegar samband við einstök gervitungl getur verið lélegt.
Gæði SCX-21 áttavitans koma fram í auknum gæðum þeirra siglinga- og fiskileitartækja sem hann tengist, rödurum, dýptarmælum, sónurum og sjálfstýringum. Sjálfstýringin heldur stefnunni betur sem sparar tíma, eldsneyti og peninga í hverri hverri siglingu og aukin nákvæmni upplýsinga um dýfu, veltu og híf gefur betri og réttari mynd á Furuno dýptarmælunum og sónurunum, jafnvel í versta veðri.
Með tengingu SCX-21 við Furuno radarinn birtist raun-eftirslóð (True echo trail) á skjámyndina, sem er gagnlegt við að átta sig betur á hreyfingu annarra skipa, sem og eigin skips. Nákvæmar hraða og stefnu upplýsingar tryggja að eftirslóðir skipa birtast skýrt og nákvæmlega en ekki óskýrar eða ógreinilegar eins og getur gerst í áttavitum af lakari gæðum.
- SCX-21 er með þremur NMEA 183 tengjum TX/RX og einu PPS tengi, RS-485. Hann er hannaður fyrir rörafestingu (Pole mount)
- Skilar af sér hárnákvæmu stefnumerki sem nota má inn á; sjálfstýringar, radara, AIS, sónara, leiðarita og fleiri tæki
- Stefnunákvæmni uppá 0.4°RMS
- Mjög hraðvirk uppfærsla á merki eða 45°/s, sem er langt umfram það sem reglugerðin “IMO High Speed Craft” fer fram á (sem er 20°/s)
- Mjög nákvæm GPS, SBAS (WAAS/EGNOS/MSAS) merki − SOG, COG, ROT, og L/L
- Sambyggt tæki, loftnet og vinnslueiningin eru í sama húsi, sem einfaldar uppsetningu og sparar pláss
- Tækið er án stjórneiningar og skjás
- Ekki er þörf á árlegu viðhaldi eða eftirliti, enginn fastur kostnaður
- Stílhrein hönnun og uppsetning er einföld
SCX-20 og SCX-21 GPS áttavitarnir eru enn ein nýjungin frá FURUNO. Með því að nota fjögur aðskilin loftnet eru SCX-20 og SCX-21 áreiðanlegri og nákvæmari en eldri gerðir svo lítilla áttavita. Hefðbundin loftnet reikna stefnu með einni grunnlínu á milli tveggja loftneta, en fjögur loftnet SCX-20 og SCX-21 geta reiknað upplýsingar um stefnu með því að nota eina af sex grunnlínunum sem dregnar eru á milli loftnetanna fjögurra. Þessi hönnun með fjórum loftnetum gerir tækjunum kleift að reikna út svo nákvæmar upplýsingar um stefnu, dýfu (pitch), veltu (roll) og híf (heave) sem stærri tæki gera. Áttavitarnir henta vel til uppsetningar við erfiðar aðstæður í möstrum þar sem getur skyggt á gervihnetti.
Tækin gefa út bæði haldna og stýrða stefnu með 1° nákvæmni og fylgir eftir stefnubreytingum um 45° á sek. Móttakarinn er innbyggður í loftnetið sem auðveldar mjög uppsetningu. SCX-20 gefur út merki á NMEA-2000 staðlinum en merkjabreytir er fáanlegur fyrir NMEA-0183 og AD-10 merki. Báðir áttavitarnir gefa út merki til leiðréttingar á ölduhæð fyrir dýptarmæla. SCX-20 og SCX-21 henta vel fyrir minni báta.
Vörulýsing
| Skjástærð: | BB | Nákvæmni (GPS): | 5 m |
| AD10: | Nei | NMEA2000: | Nei |
| NMEA0183: | Já (3) | Roll/Pitch: | Já |
| Hraði skynjunar: | 45° /sek | Nákvæmni: | +-0.5° |
| Spenna: | 12 – 24 VDC | Straumtaka: | 0.2 – 0.1 A |
PDF Skjöl
| Bæklingur | SCX-21 Bæklingur |
| Leiðarvísir | SCX-21 Leiðarvísir |


