Furuno NavPilot er framúrskarandi sjálfstýring fyrir margar gerðir skipa. Hugbúnaður í sjálfstýringunni aðlagar stýringuna að siglingu og stýriseiginleikum eigin skips og heldur skipinu á réttri stefnu með stöðugri úrvinnslu mikilvægustu siglingaupplýsinga, þ.e. hraða skipsins, drift, veðri o.fl.
Margar skjámyndir eru í boði, sem gerir notanda kleift að setja upplýsingar fram á skjáinn á þann hátt sem hentar eigin þörfum, með tölulegum og grafískum upplýsingum. NavPilot-711C er með litaskjá með dag- og næturstillingu sem gerir aflestur auðveldan, hvort heldur sem er að degi til í miklu sólskini eða í myrkri að næturlagi.
Allt frá því að sjálfstýringin er sett upp um borð, til síðustu siglingar, lærir NavPilot 711C á stýriseiginleika skipsins. Þetta gerir sjálfstýringunni kleift að bregðast sífellt við gagnvart hraða, drift, veðri o.s.frv. Þessar upplýsingar eru síðan geymdar í minni í stjórneiningunni þar sem þær eru í sífelldri endurvinnslu til að bæta eiginlega sjálfstýringarinnar.
Vörulýsing
NMEA0183: | Já (2) | NMEA2000: | Já |
Skjástærð: | 4.1″ | Vatnsheld: | IP56 |
Spenna: | 12 – 24 VDC | Straumtaka: | 4.0 – 2.0 A |
Fantum Feedback: | Já | FPS: | Já |
PDF Skjöl
Bæklingur | NAVpilot711C Bæklingur |
Leiðarvísir | NAVpilot711C Leiðarvísir |