Navpilot-1000 er HCS (Heading Control System) viðurkennd sjálfstýring sem tengist bæði hliðrænum (analog) stýrisbúnaði og ventla (solenoid) stýrisbúnaði sem oft er í stærri skipum. Velja má að hafa sjálfstýringuna stillta á IMO viðurkennda framsetningu eða ekki, allt eftir aðstæðum sem skipið er í á hverjum tíma. Vista má allt að sex mismunandi stillingar sem henta ólíkum aðstæðum og siglingum.

Sjálfstýring (Auto-Mode): Navpilot 1000 notast við háþróað reiknilíkan til að tryggja stefnufestu á siglingu og mýkt í beygjum þegar breytt er um stefnu.
Sjálfvirk stilling (Auto Tune): Navpilot 1000 stillir sig sjálf að eiginleikum skipsins og með því nær hún að hámarka stefnufestu á siglingu og mýkt í beygjum við stefnubreytingar.
Vinnuviðmót (Work Profiles): Hægt er að vista allt að 6 mismunandi vinnuviðmót í stýringunni. Þannig má forstilla eiginleika sem hentar við mismunandi veður og veiðar, þetta er einstaklega hentugt fyrir fiskiskip.
IMO viðurkennd sjálfstýring: Navpilot 1000 er IMO viðurkennd sjálfstýring.

Vörulýsing
| NMEA0183: | Já (4) | NMEA2000: | Já |
| Skjástærð: | 5.7″ | Vatnsheld: | IP22 |
| Spenna: | 12 – 24 VDC | Straumtaka: | 4.0 – 2.0 A |
PDF Skjöl
| Bæklingur | NAVpilot1000 Bæklingur |
| Leiðarvísir | NAVpilot1000 Leiðarvísir |

