ECDIS eða Electronic Chart Display and Information System er sjálfstæður siglingabúnaður sem meðal annars gerir pappírskort óþörf.
Í ECDIS eru lögleg rafræn sjókort sem uppfylla alla nauðsynlega staðla og eru IMO viðurkennd. Kortin er hægt að fá í áskrift þannig að þau uppfærast sjálfkrafa og eru því alltaf eins nákvæm og völ er á. Brimrún þjónustar ENC sjókort frá Admiralty, bresku sjómælingastofnunni (United Kingdom Hydrographic Office – Admiralty Maritime Product and Service). Admiralty leigir kortin í 3, 6, 9 eða 12 mánuði. Kortin eru virk að leigutímanum loknum en til að fá þau uppfærð verður að endurnýja leiguleyfið.
FMD-3100 er mjög notendavænn búnaður sem samanstendur af sambyggðri 24” skjá- og stjórneiningu og er afar einfaldur í uppsetningu. Tækinu má stjórna alfarið með einni kúlumús og eins má tengja við það lyklaborð.
Hægt er að kalla ýmisskonar skjámyndir fram á tækinu t.d. ratsjármynd eingöngu eða ratsjármynd yfir kortið. Þá má fá ECDIS kortið inn á FAR 3000 ratsjána. Einnig er hægt að kalla fram svokallaða leiðsöguskjámynd (Conning display) sem sýnir ýmisskonar upplýsingar sem sendar eru inn á tækið frá öðrum búnaði.
Margskonar viðvaranir eru í ECDIS. Gert er ráð fyrir því að djúprista skipsins sé skráð inn í búnaðinn. Ef sett er út leið yfir sker eða grynningar sem eru á minna dýpi en djúpristan, gefur ECDIS út viðvörun og heimilar ekki þessa siglingaleið. Einnig gefur ECDIS út viðvörun ef stefnulína gefur til kynna að grynnra vatn sé fyrir stafni. Hérna er því um gríðarlegt öryggistæki að ræða.
Vörulýsing
Skjástærð: | 24″ | Aukaskjár: | Já (1) |
Conning: | (Já Mini) | Sjálfstýring NAV: | Nei |
Upptaka: | Nei | NMEA0183: | 4 |
Ethernet: | 2 | IMO: | Já |
Spenna: | 24 VDC / 100 – 220VAC | Straumtaka: | 4.1 A / 1 A – 0.5 A |
PDF Skjöl
Bæklingur | FMD-3100 Bæklingur |
Leiðarvísir | FMD-3100 Leiðarvísir |