Furuno FMD-3005 ECDIS

Skjár FMD-3005 er fjölnota, auk ECDIS skjámynda sýnir hann ýmsar skipstjórnunar upplýsingar (Conning display, leiðsöguskjámynd), radar og kortaradar skjámyndir (krefst tengingar við radar) og viðvaranir (Alert management system) (valkvætt og krefst viðbótarhugbúnaðar). FMD-3005, eins og önnur ECDIS tæki frá Furuno, vinnur með ENC sjókort frá Primar og öðrum viðurkenndum sjókorta framleiðendum.

Uppfyllir staðla Alþjóða Siglingamálastofnunarinnar, IHO/S57 Edition 3 vektorkort (línukort).

Einfalt og fljótlegt er að leggja út nákvæmar siglingaleiðir sem byggja á upplýsingum sjókortanna og annarra siglingaupplýsinga.

FMD-3005 er ethernet-tengjanlegur við FAR-2xx8 og FAR-2xx7 radarlínurnar til að fá radarmyndina (radar overlay) yfir á ECDIS tækið, sem og radarmörk (track target info), leiðir og leiðapunkta (routes and waypoints).

Uppfyllir eftirtaldar IMO (International Maritime Organization) og IEC (International Electrotechnical Commission) reglur:
IMO A.694 (17) IEC 60945 Ed. 4 IEC 61174 Ed. 4
IMO MSC.191 (79) IEC 61162-1 Ed. 5 IEC 62923-1/-2
IMO MSC.262 (82) IEC 61162-2 Ed. 1 IEC 62923-1/-2
IMO MSC.302 (87) IEC 61162-450 Ed. 2

Velja má með tækinu 27“ breiðan Furuno LCD skjá, MU-270W. Auðvelt er að skipta skjánum milli DVI1 og DVI2 (með skiptiboxi frá söluaðila). Sjálfvirk skipting yfir á DVI2 ef DVI1 rofnar.

Sjálfstýringar með TCS stöðlum (Track Control System) geta haldið stefnum eftir línum sem gerðar eru í ECDIS. Sjálfstýringar sem eru tengjanlegar við FDM-3005 uppfylla eftirtalda TCS staðla: IEC 62065 ED.2.0; FAP-3000, PR-9000, PT-900, NP-5400.

Ný hönnun vél- og hugbúnaðar Furuno skilar tafarlausum (mynd-) kortauppfærslum á skjáinn. Hvað FMD-3005 varðar tilheyra slíkar tafir fortíðinni.

Uppsetning og tengingar búnaðarins eru með einfaldasta móti. FMD-3005 tækinu fylgir sérstakur merkjabreytir Furuno fyrir tengingu við hina ýmsu nema sem gefa nauðsynlegar ECDIS upplýsingar inn á kerfið, ECDIS tækið og kortaratsjár.

Nema siglingatækja má tengja beint við I/O tengi (8 raðtengi) vinnslueiningar (Processor unit) FMD-3005. En tenging þeirra er nauðsynleg gegnum merkjabreyti við eftirfarandi aðstæður:

  • Upplýsingunum frá nemunum er dreift til margra annarra tækja
  • Fjöldi nema sem tengjast kerfinu er fleiri en 8, og/eða;
  • Meðal nema í kerfinu eru hliðrænir (analog) nemar

Ef tengja á nemana við fleiri tæki en eitt FMD-3005 tæki, t.d. tvö FMD-3005 tæki eða eitt FMD-3005 tæki og einn kortaradar, þá má gera það með tvennum hætti:

  • Bæta netskipti frá Furuno, HUB-3000, við kerfið, sjá tengimynd hér undir.
  • Tengja saman merkjabreytinn, ECDIS tækin og kortaradarinn með ethernet tengingu.

FMD-3005 er stjórnað með stjórneiningunni RCU-024 eða kúlumúsar stjórneiningunni RCU-026. Öllum aðgerðum í tækinu má stjórna með kúlumúsar stjórneiningunni; kúlunni, skrunhjólinu og vinstri/hægri smellum.

Stöðustika (Status bar) og flýtistika (InstantAccess bar) eru afar gagnleg „verkfæri“ í FMD-3005. Stöðustikan sýnir mikilvægustu stillingar sem eru virkar á hverjum tíma. Flýtistikan sýnir allar helstu aðgerðir eða valmöguleika sem í boði eru fyrir þær stillingar sem eru virkar á hverjum tíma. Velja má aðgerðir beint af flýtistikunni, sem er fljótlegra en að framkvæma aðgerðina gegnum valmyndir.

PDF Skjöl

Bæklingur FMD-3005 Bæklingur