Furuno FM-4721

FM-4721 er sterkbyggð og vönduð Furuno VHF talstöð, byggð til að standast verstu aðstæður til sjós, er vatnsheld og fyrirferðarlítil, þægileg í allri notkun og auðveld í uppsetningu.  Stöðin samanstendur af stjórneiningu með skjá , stjórnborði  og hátalara, handeiningu með skjá, stjórnborði,  hátalara og hljóðnema og vegg-/borðfestingu.  Val er um 1 W eða 25 W í sendiorku.

Stöðin er skiptitals talstöð (Semi-Duplex ), tengist einu VHF loftneti fyrir sendingu, móttöku og DSC boð.  Stór snúningshnappur til að velja rásir.  Sérstakur þrýstihnappur til að velja rás 16 (alþjóðleg VHF tal-neyðarrás á 156,800 kHz (156 MHz)) og rás 9 (alþjóðleg VHF vinnurás á 156,450 kHz).  Innbyggður er 30 W hátalari fyrir ýmsar sjálfvirkar viðvaranir auk tals.

Stöðin er viðurkennd GMDSS Class-D talstöð, með innbyggðum DSC eiginleika og sjálfvirkri vöktun á rás 70 (alþjóðleg VHF neyðarrás á 156,525 kHz fyrir DSC boð (ekki fyrir tal)).  DSC boð má senda á einstök skip eða öll skip.  Með því að tengja stöðina við GPS, er hægt að senda úr talstöðinni þá staðsetningu sem neyð hefur skapast á, yfir í önnur siglingatæki og stýra eftir þeim beint á neyðarstaðinn.  Stöðin getur kallað sjálfvirkt (Poll) eftir DSC upplýsingum allt að fjögurra skipa, þ.m.t. staðsetningu þeirra.

Siglingafræðilegar upplýsingar, staðsetning, hraði og stefna birtast á skjá stöðvarinnar.   Lyklaborð stjórneininganna eru með stórum stöfum og tölustöfum.  Tengja má tvær handeiningar með skjá, stjórnborði,  hátalara og hljóðnema við stöðina, auk handeiningar sem er aðeins með hljóðnema og rofa.  Við þetta má svo bæta Bluetooth þráðlausri höfuðeiningu sem inniheldur hátalara og hljóðnema.

Stöðina má setja upp í ATIS framsetningu (Mode) þegar siglt er eftir skurðum og ám.  ATIS (Automatic Transmitter Identification System) virkar eins og AIS, stöðin sendir upplýsingar um eigið skip til eftirlitsstöðva við siglingaleiðir inn með skurðum og ám.

Vörulýsing

Skjástærð: 3.1″ Sendiorka: 25 W
NMEA2000: Nei NMEA0183:
Spenna: 12 VDC Straumtaka: 6.0 A
DSC: Já Class D IMO: Nei

PDF Skjöl

Bæklingur FM-4721 Bæklingur
Leiðarvísir FM-4721 Leiðarvísir