Furuno hefur tekið stórt framfaraskref í fiskileitartækni með TruEcho CHIRPtm og blöndun tíðna.
ACCU-FISHtm og botngreining á grunnsævi og djúpsævi
Með því að notast bæði við CHIRP botnstykki og venjulegt botnstykki (á aðeins við FCV-800) við dýptarmælinn, birtast CHIRP endurvörpin á skjánum á sama tíma og ACCU-FISHtm og botngreiningar eiginleikarnir eru virkir. Á skjánum sjást samtímis fiskendurvörp, mat á fiskistærð, dýpi á fisk og samsetning botnsins (botngreining). Vista má allt að þrjár fyrirfram valdar vinnslutíðnir.
|
Notenda handbók Smelltu á bókina til |
![]() |
|---|
Nýir og endurbættir eiginleikar í FCV-600 og FCV-800
- TrueEcho CHIRPtm – Vinnur á breiðu tíðnisviði breiðbands botnstykkis sem gefur skýrari merki og fiskendurvörp
- RezBoosttm merkjaúrvinnsla – Aukinn skýrleiki og aðgreining við notkun venjulegra botnstykkja (CW transducers (continuous wave))
- ACCU-FISHtm – Einstakur eiginleiki til að meta fiskistærð og dýpi á fisk
- Botngreining – Sýnir botngerð og samsetningu sjávarbotnsins sem fjórar botngerðir (grjót, möl, sandur, leðja)
- Útgangur fyrir botnhörku – Með Maxsea Time Zero Professional er upplýsingum um botnhörku safnað í gagnagrunn
- Nákvæmari litgreining endurvarpa – Þessi aðgerð aðgreinir fiskendurvörp betur frá botnendurvörpum
- Hvítlína – Aðgreinir betur botnlægan fisk frá botni með því að sýna hvíta línu við botnyfirborðið sem jafnframt sýnir lögun botnsins betur
- Styrkstilling fyrir liðinn tíma – Til að stilla mögnunina (Gain) fyrir endurvörp liðins tíma á skjánum
- Stillanlegar viðvaranir – Dýpi, fiskendurvörp, hraði, koma o.fl.
- TLL útgangur – Torfustaðsetning (Target Lat/Lon) sem gagnast við að merkja fiskislóðir með ýmsum upplýsingum, t.d. dýpi, sjávarhita, fiskistærð og botngerð í tengdum Furuno og TZ kortaleiðaritum
- Hraðir sendipúlsar – 3.000 sendipúlsar á mínútu
- Litatöflur – Þ.m.t. sólskins og gular litatöflur
- Þráðlaus tenging – Hægt er að hafa auka skjá tengdan þráðlaust, t.d. símaskjá eða ipad
Vörulýsing
| Tíðni: | 50-200 kHz | Sendiorka: | 300/600/1000 W |
| Skjástærð: | 5.7″ (FCV-600) 8.4″ (FCV-800) | Drægi: | 1200 m |
| Mótun: | CW/FM | Geislafjöldi: | 1 |
| Spenna: | 12-24VDC | Straumtaka: | 1.6 – 0.8 A |
| Ölduleiðrétting: | Nei | FDF: | Já |
| FFS: | Nei | NavNet: | Nei |
| AccuFish: | Já | CHIRP: | Já |
| BDS: | Já | DSP: | Nei |
PDF Skjöl
| Bæklingur | FCV-600/FCV-800 Bæklingur |
| Leiðarvísir | FCV-600/FCV-800 Leiðarvísir |


