Furuno DS-85

Model DS-85 Doppler hraðamælir
Gefur stöðugar og hárnákvæmar hraðamælingar, hraða í sjó (STW)

Eiginleikar

Hárnákvæmar mælingar
Þegar skip siglir um sjóinn myndast hljóðrænt suð eða truflun sem kalla má suðlag (noise layer, boundary layer). Þetta suðlag getur valdið skekkjum í tækjum sem vinna með hljóðbylgjur. DS-85 mælir hraða í sjó (STW) á dýpi sem er meira en suðlagið nær til og því truflar það ekki hraðamælingar tækisins sem fyrir vikið gefur stöðugri og nákvæmari hraðamælingar en hraðamælar sem byggja á rafsegulmagnstækni.

Meiri stöðugleiki
DS-85 er með nýju botnstykki og hugbúnaði sem dregur úr skekkjum sem froða og slíkt getur valdið við hraðamælingar. Tækið skilar fyrir vikið stöðugum og nákvæmum hraðaupplýsingum.

Nettari ventill til að skipta út hraðanema (valkostur)
Nýi ventillokinn fyrir hraðanemann er um 30% léttari en fyrri gerð. Þegar fyrri gerð er skipt út (DS-80) er hægt að nota sama ventilloka og var fyrir DS-80 hraðanemann. Nýju nemarnir passa í sama ventilloka, sem lækkar kostnað við enduruppsetningu.

Skýrar skjáupplýsingar
Skjár tækisins gefur skýran aflestur sem lesa má úr nokkurri fjarlægð, stafir eru stórir og skarpir í björtum tónum.

DS-85 uppfyllir nýjustu staðla IMO og IEC:

  • IMO A.694(17) IEC61023 Ed.3.0
  • IMO A.824(19) IEC61162-1 Ed.5.0
  • IMO MSC.36(63) EC61162-2 Ed.1.0
  • IMO MSC.97(73) IEC61162-450 Ed.2.0
  • IMO MSC.191(79) IEC62288 Ed.2.0
  • IMO MSC.302(87) IEC60945 Ed.4.0
  • IEC62923-1/-2 Ed.1.0

PDF Skjöl

Bæklingur DS-85 Bæklingur
Leiðarvísir DS-85 Leiðarvísir