Furuno DS-60

Furuno doppler sónar DS-60 gefur nákvæmar rauntíma upplýsingar um hreyfingu skips og straumhraða. Þessar upplýsingar eru afar mikilvægar hvað öryggi varðar þegar stærri skipum er lagt að hafnarbakka og aðstæður eru ekki alltaf sem bestar.
DS-60 uppfyllir eftirfarandi staðla, sem krafist er fyrir skip sem eru 50.000 brúttó tonn eða stærri: IMO MSC.36(63), MSC.96(72), A.694(17) og A.824(19).

Eiginleikar:

Sónarinn gefur hárnákvæmar upplýsingar um hraða og stefnu skips og strauma sem skipta sköpum þegar lagst er að hafnarbakka.
Þrír sendigeislar sem draga úr áhrifum veltu og dýfu skips á nákvæmni hraða-, stefnu- og straummælinga.
Sónarinn vinnur á allt að 200 m botndýpi við mælingar á hraða yfir jörð.
Uppsetningarvinna við botnstykki sónarsins er mun einfaldari en við eldri tæki vegna minni fyrirferðar í nýju botnstykki DS-60.
Tækið er með 8,4 tommu lita LCD skjá sem gefur skýrar og greinilegar rauntíma upplýsingar, bæði stafi og tölur og gröf.
Fá má við sónarinn fjarstýringu fyrir stjórnun og birtustig skjásins.
Vatnsþéttur kassi er fáanlegur fyrir skjá til uppsetningar á brúarvæng.
Velja má aukaskjá við sónarinn, lita LCD skjá (DS-600/RD-50) eða nætur (red) LED skjá (RD-20).
Vatnsþétt tengi fyrir botnstykkið er fáanlegt með sónarnum.

Velja má um þrár skjáframsetningar (Display modes):

Lagst að hafnarkanti (Berthing)

Siglinga upplýsingar (Nav data)

3-ása hraði (3-axis speed)

PDF Skjöl

Bæklingur DS-60 Bæklingur
Leiðarvísir DS-60 Leiðarvísir