FS-1575 er sterkbyggð og vönduð Furuno MF/HF talstöð, byggð til að standast verstu aðstæður til sjós, þægileg í allri notkun og auðveld í uppsetningu. Stöðin samanstendur af stjórneiningu með 4,3“ lita LCD skjá, stjórnborði og hátalara, sendi- og móttökueiningu, loftnetstengiboxi með síu, handeiningu með hátalara og rofa og vegg-/borðfestingu. Nýjar stafrænar síur gefa mikil hljóðgæði, bæði í tali og hlustun. Sendiorka stöðvarinnar er 150 W.
Stöðin er skiptitals talstöð (Semi-Duplex) sem tengist einu MF/HF sendi- og móttökuloftneti. Tengja má sérstakt MF/HF móttökuloftnet við stöðina til að taka á móti DSC boðum. Stór snúningshnappur er til að velja rásir og sérstakir hnappar eru á stjórnborðinu fyrir DSC sendingar. Innbyggður er hátalari fyrir ýmsar sjálfvirkar viðvaranir auk tals.
Stöðin er viðurkennd GMDSS talstöð, með innbyggðum DSC eiginleika og sjálfvirkri vöktun á MF/HF neyðarrásum. DSC boð má senda á einstök skip eða öll skip. Tengja má tölvu og prentara við stjórneininguna og verður stöðin þá GMDSS viðurkenndur búnaður fyrir rafrænar skeytasendingar (Radiotelex). Setja má inn í stöðina nafnalista yfir allt að 256 aðila, með tengingu við þær rásir sem þeir eru á, t.d. Lyngby Radio á 1704 kHz.
Siglingafræðilegar upplýsingar, staðsetning, hraði og stefna birtast á skjá stöðvarinnar. Með því að tengja stöðina við GPS, er hægt að senda úr talstöðinni þá staðsetningu sem neyð hefur skapast á, yfir í önnur siglingatæki og stýra eftir þeim beint á neyðarstaðinn.
Ein sendi- og móttökueining getur unnið með tveimur stjórneiningum sem mega vera á sitt hvorum staðnum í skipinu. Lyklaborð stjórneininganna eru með stórum og greinilegum tölustöfum. Stöðina má tengja við símstöð.
Vörulýsing
Skjástærð: | 4.3″ | Sendiorka: | 150 W |
Spenna: | 24 VDC | Straumtaka: | 20.0 A |
DSC: | Já | IMO: | Já |
PDF Skjöl
Bæklingur | FS-1575 Bæklingur |
Leiðarvísir | FS-1575 Leiðarvísir |