Easy TRX3 AIS B

Easy TRX3 tilheyrir nýrri kynslóð AIS-B tækja.

Með 5 W sendiorku og auknum fjölda sendipúlsa á sekúndu eru gæði Easy TRX3 betri en í eldri tækjum og öryggi á siglingu meira.
Easy TRX3 er með 1 sendi, 2 móttökurum, 72 rása GNSS móttakara, innbyggðu GPS loftneti, innbyggðri VHF deilingu og er tengjanlegt NMEA2000.
Innbyggt GPS loftnet gerir uppsetningu tækisins einfalda. Aðeins þarf að tengja tækið við orkugjafa/rafmagn og VHF loftnet.
Innbyggði VHF loftnetsdeilirinn gerir kleift að nota aðeins eitt VHF loftnet fyrir VHF talstöð og Easy TRX3 AIS tækið.
Tækið kemur með mörgum innbyggðum tengimöguleikum, 1x NMEA2000, 3x NMEA0183 og 1x USB tengi. Wifi eða LAN og DVB-T2/FM/DAB+ eining eru valkvæðir möguleikar, ekki innifaldir.

Ýmsir eiginleikar:

  • Rauntímavinnsla, engin seinkun (Zero latency) í vinnslunni
  • Tvöföld gervitungla samskipti
  • Tveggja átta samskipti (Status polling)
  • Varnir gegn merkjatruflunum á GPS (Spoofing)
  • Viðvaranir vegna staðsetningar skips og siglingar
  • Tækið er sterkbyggt, vatnsþétt (IP67) og höggþolið
  • SOS viðvaranir um leitar og björgunaraðgerðir

Easy TRX3 er alþjóðlega viðurkennt AIS Class B tæki:

AIS: IEC 62287-2:2017
Umhverfi: IEC 60945:2002
GPS: IEC 61108-2003
EN 301843-1:2004
Öryggi framl. EN 60950-1
ITU-R M.1371-5

PDF Skjöl

Bæklingur Easy TRX3 Bæklingur