Furuno CSH-10

Sónarinn vinnur á 81,5 til 85,5 kHz senditíðni og aðgreinir botnlægan fisk einstaklega vel frá botni. Þröngur sendigeisli greinir auðveldlega fiskitorfur nærri yfirborði sjávar. Sérstök tækni Furuno sem notast við hreyfiskynjara, leitargeisla leiðrétting vegna ölduáhrifa (Beam stabilization), skilar stöðugri skjámynd, jafnvel í verstu brælum.

  • CSH-10 er að fullu samhæfður NavNet TZtouchXL seríunni, þ.m.t. öll stjórnun sónarsins
  • Ný valmyndaframsetning og notendavænn RotoKey snúningshnappur og stýrikúla skila hraðvirkni í allri stjórnun
  • Fá má með sónarnum auka stjórnborð, þráðlaust (tengja má allt að 4 slík auka stjórnborð)
  • Hífing niðurfarans er tvöfalt hraðari en á eldri gerðum
  • Fiskileit á allt að 20 hnúta hraða, hámarks 18 hnúta hraði við hífingu/niðurslökun niðurfarans/botnstykkis
  • Hlíf á botnstykkinu sem ver það fyrir núningi (reipa, víra) og höggum
  • CSH-10 passar í venjulegar botnstykkja/niðurfara tunnur

CSH-10 er með nýjum eiginleika frá Furuno sem kalla má sjálfvirka síu (Auto filter) sem skilar skarpari skjámynd og minni truflunum. Þessi eiginleiki, ásamt leiðréttingunni vegna ölduáhrifa, gefur afbragðsgóða skjámynd og greiningu á fiskitorfum og öðrum neðansjávar fyrirbærum.

Hér undir eru tvær myndir, önnur er skjáskot úr CSH-10 og hin skjáskot úr eldri sónar. Skjáskotin eru af sama neðansjávar fyrirbærinu, skipsflaki. Leiðréttingin vegna ölduáhrifa, sjálfvirka sían og önnur ný tækni Furuno með úrvinnslu sendi- og móttökugeisla gera myndina í CSH-10 sónarnum mun skýrari en í eldra tækinu.

CSH-10 og eldri sónar, skipsflak á 30 m dýpi

Geta CSH-10 til að greina fiskitorfur og önnur neðansjávar fyrirbæri í mikilli fjarlægð er umtalsvert meiri en í eldri sambærilegum sónurum, eða í allt að 900 metra fjarlægð. Á sónarmyndinni hér undir sést skipsflakið í 850 metra fjarlægð. Hreyfiskynjarinn sem er innbyggður í sónarinn er af nýrri gerð sem eykur fjarlægðar greiningargetu sónarsins um 20% umfram eldri gerðir.

Skipsflak í 850 m fjarlægð

Litgreiningin í sónarnum byggir á 32 litum en í eldri tækjum byggði hún á 16 litum. Fiskitorfur birtast skarpari og litir gefa meiri upplýsingar um ólíkar tegundir fiska. Sjá myndir hér undir.

Dæmi: Hestamakríls torfa og sardínur

Velja má milli tveggja skjáframsetninga, sónar framsetningu eða sónar og dýptarmælis framsetningu.

Sónar framsetning og sónar og dýptarmælis framsetning

CSH-10 er samhæfður við TZtouchXL, Time Zero tækjalínuna

Með því að tengja CSH-10 sónarinn við TZtouchXL netkerfið er hægt að fá lóðningar (endurvörp) sónarsins inn á TZtouchXL snertiskjáinn. Með stjórnun gegnum TZtouchXL er meðal annars hægt að stýra halla leitargeislans og næmi (styrkstillingu).

Með því að leggja sónarmyndina yfir kortið í TZ snertiskjánum, með öllum þeim upplýsingum sem þar er að finna, þ.m.t. dýpisupplýsingum, fæst gleggri mynd af neðansjávar umhverfinu, sjávarbotninum, landslagi og fiskitorfum.

Sónarmynd á TZtouchXL skjá

Sónarskjámyndin á TZtouchXL

Sónarmynd yfir korti á TZtouchXL skjá

Lóðningar sónarsins yfirlagðar á TimeZero skjá

Nokkrar gagnlegar aðgerðir í sónarnum

Fiskimatsmerki til að meta stærð torfu

Þessi aðgerð gerir kleift að meta samtímis stærð tveggja fiskitorfa. Til hægðarauka við að ákveða þarf hvora skal setja í sigtið. Sónarinn þarf að vera tengdur hraða- og stefnunemum.

Fiskimatsmerki

Þegar fiskimatsmerki er virkjað birtast upplýsingar um torfuna á skjásvæðinu fyrir töluleg og myndræn gögn, lengd, breidd, umfang torfu og tölugildismat torfunnar (Index value). Tölugildismatið er hlutfallstala yfir stærð fiskitorfunnar innan ummáls fiskimatsmerkisins. Þegar skipstjóri er að bera saman tvær torfur og þarf að ákveða hvora skal setja stefnuna á geta þetta verið mjög gagnlegar upplýsingar.

Torfulæsing

Torfulæsingaraðgerðin lætur sónarinn rekja (track) fiskitorfu þannig að hún hverfur ekki af skjánum. Reiknuð og sýnd er fjarlægðin frá eigin skipi til torfunnar sem og dýpi, hraði og stefna hennar. Sónarinn þarf að vera tengdur hraða- og stefnunemum.

Velja má milli tvenns konar torfulæsinga, staðsetningar rakningar (Position tracking) og fiskitorfu rakningar (School tracking). Þegar valin er staðsetningar rakning má læsa (track) á sker eða önnur föst fyrirbæri.

Torfulæsing

Þegar atviksmerki er sett út (virkjað) birtast á skjánum eftirfarandi upplýsingar um það merki, fjarlægð í merkið, stefnan í merkið og dýpi þess.

Einföld mynd af halla leitargeislans

Einföld mynd af halla leitargeislans birtist í vinstra efra horni skjásins, kalla má myndina „hallavísbendingu“ (Tilt indicator). Á myndinni birtist hallahornið og fjarlægðin í bendilinn og lárétt og lóðrétt fjarlægð í bendilinn sem og leitarskali sendigeislans og dýpið á efri og neðri mörk leitargeislans.

Lárétt, lóðrétt og raunfjarlægð í bendilinn

Hallavísbending á skjá

Hagkvæmni við hönnun nýrrar stjórneiningar

Stjórneiningin er fyrirferðarminni en í eldri gerðum sónara og einfaldari í uppsetningu. Til viðbótar við hina gagnlegu aðgerðalykla (Function keys) eru í þessari stjórneiningu, hallastillir (Tilt lever), sérstakur snúningshnappur (RotoKey) og stór kúlumús (Trackball).

Upptaka gagna og spilun

Vista má kyrrmyndir (skjáskot) og hreyfimyndir (myndbönd). Velja má um að vista myndir í innbyggðu minni sónarsins eða í ytri búnaði. Einfalt mál er að spila vistaðar myndir út frá valmyndum (Menu) sónarsins.

Listi yfir vistaðar myndir

Spilun hreyfimynda

Fjarstýringar

Stilla má leitarskala, hallahorn og næmni (styrkstilling, Sensitivity) sónarsins með fjarstýringu. Tvær gerðir fjarstýringa eru í boði, þráðlaus eða með þræði. Allt að fjórar þráðlausar fjarstýringar má nota með Bluetooth tengingu. Einnig er fáanlegt nýtt lítið rofabox sem inniheldur ekkert annað en straumrofa, upp/niður takka og hátalara. Með boxinu er hægt að stjórna upp/niður færslu niðurfarans/botnstykkisins úr fjarlægð.

Á skjá sónarsins má kanna stöðu þráðlausu fjarstýringarinnar SCU-001.

Staða þráðlausu fjarstýringarinnar

Fjarstýring með þræði FSV-854-MK2
Fjarstýring með þræði
FSV-854-MK2
Þráðlaus fjarstýring SCU-001
Þráðlaus fjarstýring
SCU-001
Rofabox SCU-003
Rofabox
SCU-003

Staða niðurfarans/botnstykkisins

Upplýsingagluggi fyrir stöðu niðurfarans/botnstykkisins er í efra vinstra horni skjásins. Í glugganum sést greinilega hver staða niðurfarans/botnstykkisins er á hverjum tíma. Þessar upplýsingar eru mikilvægar fyrir skipstjórann og geta komið í veg fyrir slys og auka þar með öryggi skipsins.

Upplýsingagluggi fyrir stöðu niðurfarans/botnstykkisins

Staða botnstykkisins: efsta staða, hífing, slökun, neðsta staða

Ný gerð af hlíf til að verja hljóðöld (augu, Element) botnstykkisins

Tvær gerðir af niðurförum (Hull units) eru í boði með CSH-10, 40 cm og 60 cm niðurfærslu. Full færsla niðurfarans, upp eða niður, tekur 7 sek. á 40 cm niðurfaranum og 10 sek. á 60 cm niðurfaranum. Niðurfararnir standast 18 hnúta siglingahraða þegar þeir eru í neðstu stöðu og í gangi og 20 hnúta siglingahraða þegar þeir eru í neðstu stöðu en ekki í gangi.

Ný gerð af hlíf ver botnstykkið fyrir höggum og núningi reipa og víra



Vörulýsing

Tíðni: 81,5–85,5 kHz Skjástærð: BB
Hringsónar: Já Drægi: 2.000 m
Geislasónar: Nei Sendigeisli: 6° (lóðrétt)
Púlslengd: 0,5–20 ms Ölduleiðrétting: Já
Niðurfari: 400 mm eða 600 mm Hífing/slökun: 7 s / 10 s
Tilt: -5° til 60° CHIRP: Já

PDF Skjöl

Bæklingur CSH-10 Bæklingur
Leiðarvísir CSH-10 Leiðarvísir