
FOIL-200 Furuno ratsjáin nemur endurvörp frá olíublettum og -flákum á haffletinum. Ratsjáin var hönnuð vegna sjónarmiða umhverfisverndar og verndunar lífríkisins.
FOIL-200 greinir olíufláka sjálfkrafa og teiknar þá á skjáinn til að merkja þá sem olíufláka. Merkja má flákana með handteiknuðum svæðum og uppfæra teikninguna hvenær sem þess er þörf.
Ratsjármyndbönd og skjámyndir er hægt að taka upp og vista á harðan disk eða minniskubb.
Endurvarpsstyrkur ratsjárbylgna frá öldum ræðst m.a. af hæð þeirra. Seigja olíu er mun meiri en sjós og vatns og þess vegna verða endurvörp frá haffleti með olíuflákum veikari og ógreinilegri en frá ómenguðum hærri haföldum.
Í Furuno FOIL-200 ratsjánni er sérstakt reiknirit (algorithm) til að sýna þessi olíumenguðu hafsvæði greinilega á ratsjárskjánum.
FOIL-200 ratsjáin er samhæfð venjulegum Furuno FAR-15×8, FAR-2xx7, FAR-2xx8 og FAR-3000 X-band ratsjám.

Á myndinni eru sameinaðar í eina skjámynd, myndir og gögn frá venjulegri siglingaratsjá og frá olíuratsjánni. Græn endurvörp eru frá siglingaratsjánni, önnur endurvörp eru frá olíuratsjánni.

Björt endurvörp eru frá öðrum skipum (dökk skuggaslóð fylgir þeim). Dökka svæðið til hægri við stefnulínuna (Heading line) bendir til þess að um olíufláka sé að ræða.

Notandi ratsjárinnar hefur sett inn grænan marghyrning.

Olíufláki birtist sem dökkt „endurvarpslaust“ svæði á skjánum.
PDF Skjöl
| Bæklingur | FOIL Bæklingur |
| Leiðarvísir | FOIL Leiðarvísir |

