Furuno BBDS1

Furuno BBDS1 dýptarmælir

BBDS1 er blackbox, tveggja tíðna dýptarmælir (50/200 kHz), án skjás og stjórneiningar. Stjórnunin fer fram í TimeZero. BBDS stendur fyrir Blackbox Bottom Discrimination Sounder.
BDS botngreiningar eiginleikinn greinir sjávarbotninn í leðju (leir, mud), sand, möl (gravel) og grjót (berg, rock).

Mælirinn er með afbragðs góðri botnaðgreiningu sem greinir bæði smáfisk og stóran fisk frá botninum.

FDF eiginleikinn (Furuno Digital Filter) aðgreinir smáfisk og stærri fisk með skýrum hætti á skjámyndinni. Þá nýtist þessi eiginleiki við samstillingu sendiorku og móttökustyrks og að draga úr truflunum af völdum endurvarpa stutt frá botnstykkinu (Main bang).
ACCU-FISH eiginleikinn nýtist frábærlega vel við að ákvarða stærð einstakra fiska í lóðningum.

Velja má að hafa mælinn stilltan á 8, 16 eða 64 endurvarpsliti.
Hafa má allt að 8 fasta dýpisskala að 1200 metra dýpi.
Val á milli 600 W og 1000 W sendiorku.
Hljóðviðvaranir og myndrænar viðvaranir vegna dýpis, fiskendurvarpa og sjávarhita (krefst viðeigandi nema)

Velja má milli margra og ólíkra botnstykkja, allt eftir því hvað hentar skipi og veiðiskap.
Mælinn má setja á sjálfvirka siglingastillingu eða fiskistillingu, auk þess er hægt að stilla sendi- og móttökustyrkinn handvirkt.
Sjálfvirkur eiginleiki til að nema fisk og botn á bæði grunnsævi og djúpsævi.
Hvítlína sem aðgreinir botnlægan fisk frá sjávarbotninum.

BBDS1 dýptarmælinn er hægt að nota við bæði TimeZero Professional og TimeZero Navigator
BBDS1 dýptarmælirinn hentar vel til að safna upplýsingum um botngerð og -lögun inn í TimeZero Professional.

ATH! Til að safna upplýsingum og vista þá þarf TimeZero Professional og PBG gagnagrunn.







Vörulýsing

Tíðni: 50-200 kHz Sendiorka: 1 kW
Skjástærð: BB Drægi: 5 til 1200m
Mótun: CM Geislafjöldi: 1
Spenna: 12-24VDC Straumtaka: 1.1 – 0.4A
Ölduleiðrétting: Nei FDF:
FFS: Nei NavNet:
AccuFish: CHIRP: Nei
BDS: DSP: Nei

PDF Skjöl

Bæklingur BBDS1 Bæklingur
Leiðarvísir BBDS1 Leiðarvísir