FR-10 einingin er með 10,4“ lita LCD skjá og FR-12 er með 12,1“ lita LCD skjá. Þessar radar skjáeiningar ganga við flest Furuno DRS loftnetin, þ.a. notandinn getur parað skjáeiningarnar við flest DRS loftnet, allt eftir því hvað hentar fyrir viðkomandi skip. Þessar ratsjár búa yfir nýlega þróuðum eiginleikum Furuno, „Risk Visualizer™“, „Echo Average“, „Target Analyzer™“ og fleirum sem gagnast við að ferla mörk (skip) á siglingu og við aðrar aðstæður, s.s. „Custom AIS og „Multi Language“ eiginleika.
Radar skjáeiningarnar eru samhæfðar mörgum Furuno loftnetum
FR-10 og FR-12 ganga við flest loftnet Furuno úr DRS loftnetalínunni. Samsetningar möguleikarnir eru því fjölmargir. Með því að sérvelja leitarfjarlægð (Detection range (sendiorku (power output))), skjástærð, gerð og stærð loftnets, má hámarka árangur og gæði ratsjárvinnslunnar fyrir aðstæður viðkomandi skips.
Loftnetin í töflunni hér undir eru samhæfð FR-10 og FR-12 skjáeiningunum.
| Loftnetshattur | Loftnetsblað | |
| Magnetrónu ratsjár | DRS4DL+ | DRS6A X-Class |
| DRS12A X-Class | ||
| DRS25A X-Class | ||
| Magnetrónulausar ratsjár | DRS2D-NXT | DRS6A-NXT |
| DRS4D-NXT | DRS12A-NXT | |
| DRS25A-NXT | ||
„Risk Visualizer™“
Risk Visualizer, sem mætti kalla „sýnilega hættu“, er ný tækni Furuno sem sýnir á hvaða svæðum árekstrarhætta er mögulega að skapast. Byggist þetta á núverandi stöðu og hreyfingu eigin skips og allra nálægra skipa. Myndræn framsetning á radarskjánum sýnir glögglega þetta ástand umhverfis eigið skip. Viðvaranir vegna árekstrarhættu birtast í skörpum litum á skjánum, frá grænum lit sem táknar hættulaust ástand, til rauðs litar sem táknar stórhættulegt ástand. Þessi litatákn auðvelda skipstjórnanda að meta ástandið og taka ákvarðanir um framhaldið. FR-10 og FR-12 eru fyrstu meðaldrægu ratsjárnar sem búa yfir þessum eiginleika sem er til þess fallinn að auka allnokkuð á öryggi til sjós.

Fast Target Tracking™
Fast Target Tracking, sem kalla mætti „hraðferlun marka“ er nýr tæknieiginleiki Furuno sem sýnir línu (stefnulínu), hraða og stefnu marksins (skips) með mjög hraðvirkum hætti. Mörkin eru ferluð sjálfkrafa frá byrjun sem gerir kleift að reikna út siglingaleið skipsins og birta feril þess og hraða.

Target Analyzer™
Target Analyzer, sem kalla má „greiningu marka“ er eiginleiki sem greinir mörk og sérgreinir þau skip sem eru hættuleg og líkleg til að rekast á eigið skip. Notast er við ólíka liti sem segja til um hættustig viðkomandi marks. Birting þeirra marka sem eru mögulega hættuleg með þessum hætti í ólíkum litum er mjög gagnleg fyrir skipstjórnandann sem á augabragði áttar sig á helstu aðsteðjandi hættum.

Echo Average – Útjöfnun endurvarpa
Þessi eiginleiki dregur úr eða eyðir óreglulegum endurvörpum eins og endurvörpum af sjávaryfirborðinu (öldum, öldutoppum) og úrkomu en sýnir skýrlega ýmis önnur fyrirbæri á sjávaryfirborðinu, t.d. veiðarfæri skipa. Eiginleikinn miðar að því að sýna aðeins endurvörp sem skipta máli, einnig við slæm veðurskilyrði eins og mikinn öldugang, mikla úrkomu og þétta þoku.

Radaryfirlag á kort
Í FR-12 skjáeiningunni er hægt að leggja (Overlay) radarmyndina (radar endurvörpin) yfir MapMedia MM3D kortin. Með tengingu FR-12 við GP-3700/F um íðnet (Ethernet) má til viðbótar fá merki og línur inn á radarmyndina.


