Furuno FCV-600/800

Furuno hefur tekið stórt framfaraskref í fiskileitartækni með TruEcho CHIRPtm og blöndun tíðna.

ACCU-FISHtm og botngreining á grunnsævi og djúpsævi
Með því að notast bæði við CHIRP botnstykki og venjulegt botnstykki (á aðeins við FCV-800) við dýptarmælinn, birtast CHIRP endurvörpin á skjánum á sama tíma og ACCU-FISHtm og botngreiningar eiginleikarnir eru virkir. Á skjánum sjást samtímis fiskendurvörp, mat á fiskistærð, dýpi á fisk og samsetning botnsins (botngreining). Vista má allt að þrjár fyrirfram valdar vinnslutíðnir.

Notenda handbók
á íslensku fylgir
dýptarmælinum

Smelltu á bókina til
að skoða inn í hana

Nýir og endurbættir eiginleikar í FCV-600 og FCV-800

  • TrueEcho CHIRPtm – Vinnur á breiðu tíðnisviði breiðbands botnstykkis sem gefur skýrari merki og fiskendurvörp
  • RezBoosttm merkjaúrvinnsla – Aukinn skýrleiki og aðgreining við notkun venjulegra botnstykkja (CW transducers (continuous wave))
  • ACCU-FISHtm – Einstakur eiginleiki til að meta fiskistærð og dýpi á fisk
  • Botngreining – Sýnir botngerð og samsetningu sjávarbotnsins sem fjórar botngerðir (grjót, möl, sandur, leðja)
  • Útgangur fyrir botnhörku – Með Maxsea Time Zero Professional er upplýsingum um botnhörku safnað í gagnagrunn
  • Nákvæmari litgreining endurvarpa – Þessi aðgerð aðgreinir fiskendurvörp betur frá botnendurvörpum
  • Hvítlína – Aðgreinir betur botnlægan fisk frá botni með því að sýna hvíta línu við botnyfirborðið sem jafnframt sýnir lögun botnsins betur
  • Styrkstilling fyrir liðinn tíma – Til að stilla mögnunina (Gain) fyrir endurvörp liðins tíma á skjánum
  • Stillanlegar viðvaranir – Dýpi, fiskendurvörp, hraði, koma o.fl.
  • TLL útgangur – Torfustaðsetning (Target Lat/Lon) sem gagnast við að merkja fiskislóðir með ýmsum upplýsingum, t.d. dýpi, sjávarhita, fiskistærð og botngerð í tengdum Furuno og TZ kortaleiðaritum
  • Hraðir sendipúlsar – 3.000 sendipúlsar á mínútu
  • Litatöflur – Þ.m.t. sólskins og gular litatöflur
  • Þráðlaus tenging – Hægt er að hafa auka skjá tengdan þráðlaust, t.d. símaskjá eða ipad






Vörulýsing

Tíðni: 50-200 kHz Sendiorka: 300/600/1000 W
Skjástærð: 5.7″ (FCV-600) 8.4″ (FCV-800) Drægi: 1200 m
Mótun: CW/FM Geislafjöldi: 1
Spenna: 12-24VDC Straumtaka: 1.6 – 0.8 A
Ölduleiðrétting: Nei FDF:
FFS: Nei NavNet: Nei
AccuFish: CHIRP:
BDS: DSP: Nei

PDF Skjöl

Bæklingur FCV-600/FCV-800 Bæklingur
Leiðarvísir FCV-600/FCV-800 Leiðarvísir