Furuno FAR-3000 X-Band

Ratsjárnar úr FAR-3000 línunni (Chart Radars) marka stórt framfaraspor í þróun siglingatækja.  Ný tækniþekking við úrvinnslu sendigeisla skilar aukinni greiningargetu á mörkum (skipum) og notendaviðmót ratsjárinnar er nokkuð breytt og endurbætt frá fyrri gerðum ratsjáa.  Loftflæðið um loftnetshúsið er betra og margir nýir eiginleikar eru í ratsjánni.

ACE, sjálfvirk eyðing truflana (Automatic Clutter Elimination) er nýr valkvæður eiginleiki sem skilar skarpari endurvörpum af mörkum. Í samræmi við aðstæður til sjós, stillir ratsjáin sjálfvirkt fyrir sjó- og veðurtruflunum  (Gain/Sea/Rain).  Þessi eiginleiki er afar mikilvægur fyrir skipstjórnandann sem þarf ekki, þegar aðstæður breytast, að verja eins miklum tíma í stillingar og áður.  ACE styðst við háþróaða tækni Furuno (Echo averaging), sem birtir endurvarp af mörkum útfrá meðaltalsútreikningum.  Sérstakur eiginleiki í IR tækni Furuno (Interference Reduction) á að tryggja að mikilvæg mörk detta ekki út þó svo að IR sé virkt.

Ratsjáin tekur merki frá öðrum tækjum beint í alls 8 inn-/útganga (I/O -input/output) á vinnslu einingunni (Processor).  Hægt er að tengja leiðsögumerki frá ratsjánni (t.d. ARPA) um nettengingu.  Ratsjáin er þá nettengd inn á netmiðlara t.d. „HUB100“ (Switching Hub) og á þann hátt er leiðsögumerkjum frá ratsjánni dreift um netkerfið. Á sama hátt getur ratsjáin tekið við merkjum um nettenginguna frá öðrum siglingatækjum sem eru tengd inn á sama netkerfi.

Notendaviðmót ratsjárinnar einkennist af vandlega skipulagðri og rökréttri framsetningu aðgerða sem birtast á tveimur stikum; stöðustiku (Status bar) og flýtistiku (Instant Access bar).  Á flýtistikunni eru tákn fyrir helstu og algengustu aðgerðir og skipstjórnandinn er fljótur að framkvæma þær með því að velja viðeigandi tákn.  Mun einfaldara en í algengum valmyndakerfum.  Stöðustikan efst á skjánum inniheldur upplýsingar um notendaviðmót, t.d val á viðmóti og val á aðgerðum fyrir notendaviðmót. Flýtistikan til vinstri á skjánum breytist eftir völdum aðgerðum úr stöðustikunni efst á skjánum. Á þann hátt er alltaf aðgangur að flýtivali úr flýtistikunni sem hentar því notendaviðmóti sem verið er að vinna í.  Allar aðgerðir er hægt að framkvæma með kúlu á stjórnborði ratsjárinnar.



Vörulýsing

Tíðniband: X-BAND Sendiorka: 12 / 25 kW
Skjástærð: BB Drægi: 0.125 – 120 NM
Mótun: Solid State: Nei
Snúningshraði: 24 / 42 rpm Loftnetsstærð: 4′ / 6.5′ / 8′
Spenna: 100 – 230 VAC Straumtaka: 3.7 A
UHD: Fjöldi ARPA: 200
FTT: ACE:

PDF Skjöl

Bæklingur FAR-3000 Bæklingur
Leiðarvísir FAR-3000 Leiðarvísir